Brassar eru komnir með fast tak á Argentínumönnum 17. júlí 2007 04:00 Gilberto Silva og Juan tóku báðir við bikarnum við mikla kátínu liðsfélaga sinna. Fögnuðurinn varði langt fram á nóttu enda um glæsilegan árangur að ræða. NordicPhotos/AFP
Argentína náði ekki að fylgja eftir frábærri frammistöðu í Suður-Ameríkukeppninni og steinlá 3-0 fyrir Brasilíu í úrslitaleiknum. Julio Baptista skoraði fyrsta markið eftir aðeins fjórar mínútur og fyrirliði Argentínu, Roberto Ayala, skoraði síðan sjálfsmark fyrir hlé. Það var síðan Daniel Alves sem innsiglaði sigurinn í seinni hálfleik. Argentína hafði unnið alla leiki sína í keppninni á sannfærandi hátt en áttu ekki svör við kraftmiklum Brössum sem brutu meðal 37 sinnum á þeim í leiknum og skoruðu mörk sín úr skeinuhættum skyndisóknum. „Við komum hingað til þess að bjarga sjálfstausti hins dæmigerða stuðningsmanns Brasilíu, verkamanninn sem fer að heiman snemma morguns og kemur ekki heim fyrr en á kvöldin og fær einu gleðina úr lífinu þegar Brasilía vinnur," sagði Dunga, þjálfari Brasilíu, dramatískur í leikslok. Dunga varaði líka Ronaldinho og Kaka við að þeir þyrftu að hafa fyrir því að vinna sig inn í liðið en báðir tóku sér frí til þess að jafna sig eftir langt tímabil. Brasilía hefur nú unnið þrjá þriggja marka sigra í röð á erkifjendum sínum og ef marka má taktíkina í þessum leik þá virðast þeir kunna orðið á nágranna sína. Robinho, sem varð markakóngur keppninnar með sex mörk, gat ekki leynt ánægju sinni eftir leikinn. „Þrátt fyrir að ég hafi ekki náð að skora í úrslitaleiknum er ég í skýjunum yfir því að hafa unnið titilinn. Ég hjálpaði í það minnsta til í vörninni," sagði framherjinn en þéttur varnarleikur Brasilíumanna kom sérstaklega mikið á óvart í keppninni. Þjálfari Argentínu, Alfio Basile, tapaði þarna sínum fyrsta leik í 19 leikjum í keppninni en undir hans stjórn vann Argentína bikarinn 1991 og 1993. Basile neitaði að tala við fjölmiðlamenn eftir leik.
Fótbolti Mest lesið Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Fótbolti Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Fótbolti Stelpurnar skelltu Svíum og tilheyra áfram elítunni Körfubolti N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Fótbolti Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Fótbolti Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana Íslenski boltinn Fleiri fréttir Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Tekinn við Portúgal og gæti stýrt Ronaldo á nýjan leik Sjáðu ótrúlega fimmu Ídu Marínar og Fram vinna meistarana N1-mótið: Jötunn sem þambar mjólk, frábær tilþrif og orðljótir mótherjar Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Árni Vilhjálms í Stjörnuna Manchester City kaupir efnilegan markvörð Maður dagsins á HM: Slökkti á tölvunni og heldur áfram að þagga niður í fólki Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Meiðsli, veikindi og leikbann í herbúðum Englands Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Lamine Yamal segir „ótrúlegt“ að sjá Messi enn vera að skína á HM Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu „Sérstakur leikur fyrir mig, því ég spila á Englandi og fæddist á Englandi“ Uppgjör: Þór/KA - Grindavík/Njarðvík 1-0. Margrét með sigurmarkið í upphafi leiks „Leikmenn skora mörk en liðið tekur sigurinn“ Evrópu-Emil með þrennu í endurkomusigri Stjörnunnar Sjá meira