Fótbolti

Capello með fullt borð af tilboðum

NordicPhotos/GettyImages

Ítalski knattspyrnuþjálfarinn Fabio Capello hefur fengið nokkur atvinnutilboð síðan hann var rekinn frá Real Madrid á dögunum. Í samtali við Gezzetta Dello Sport á Ítalíu segist hann hafa neitað tilboðum frá Dynamo Kiev í Úkraínu og Lokomotiv í Moskvu, en segir tilboð frá Bandaríkjunum hafa freistað sín.

"Ég hef fengið tilboð og fyrirspurnir frá Bandaríkjunum, en ég verð nú að skoða það mál betur áður en ég geri upp hug minn. Það yrði reynsla sem myndi vera áhugaverð - ekki út frá peningalegu sjónarmiði - heldur væri gaman að sjá hvort einhver getur komið knattspyrnunni á kortið í Bandaríkjunum," sagði Capello, sem einnig hefur látið í það skína að hann sé að hugsa um að hætta þjálfun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×