Erlent

Tinni í Kongó selst í bíl- förmum

Bókin Tinni í Kongó hefur vakið mikla reiði vegna meintra kynþáttafordóma í sögunni.
Bókin Tinni í Kongó hefur vakið mikla reiði vegna meintra kynþáttafordóma í sögunni.

Sala á bókinni Tinni í Kongó hefur aukist um 3.800 prósent undanfarna daga og bókin er komin í áttunda sæti yfir söluhæstu bækurnar á Amazon.co.uk.



Tinni í Kongó komst nýlega í umræðuna vegna kynþáttafordóma. Gagnrýnendur segja óviðunandi að „„þeir innfæddu“ í bókinni líti út eins og apar og tali eins og vitleysingar“.



Bókin hefur verið fjarlægð úr barnabókadeildum í bókabúðum og bókasöfnum í Englandi og í deild bóka fyrir fullorðna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×