Erlent

Sumir fengu að kjósa nokkrum sinnum

Talningafólk í Manila á erfitt verk fyrir höndum við að telja milljónir atkvæða.
Talningafólk í Manila á erfitt verk fyrir höndum við að telja milljónir atkvæða. MYND/AP

Alþjóðlegir eftirlitsmenn, sem fylgdust með þingkosningunum á Filippseyjum á mánudag, urðu vitni að því að á sumum kjörstöðum í suðurhluta landsins voru kjósendur beittir hótunum og atkvæði voru keypt.

„Flest okkar voru undrandi á framkvæmd kosninganna,“ sagði Jessica Tulloch, bandarískur sjálfboðaliði sem tók þátt í kosningaeftirlitinu.

Í borginni Marawi, þar sem hún fylgdist með á kjörstað, sá hún fulltrúa stjórnmálaflokka sitja við hliðina á kjósendum og hvísla að þeim meðan atkvæði voru greidd.

„Við sáum líka fólk sem hafði greitt atkvæði nokkrum sinnum og var með meira en einn stimpil á fingrunum,“ sagði hún.

Tveir menn létust í átökum á kjördag og þar með hafa 126 manns látið lífið síðan kosningabaráttan hófst í janúar.

Þetta er þó heldur minna mannfall en árið 2004, þegar 189 létust í átökum tengdum kosningum. Oscar Calderon lögreglustjóri sagði kosningarnar hafa verið „tiltölulega friðsamlegar“.

Á mánudaginn var kosið um tólf af 24 þingsætum í öldungadeild landsins, alla þingmenn fulltrúadeildar og nærri 17.500 ríkisstjóra, borgarstjóra og aðra embættismenn.

Ekki er reiknað með endanlegri niðurstöðu úr talningu atkvæða fyrr en eftir nokkrar vikur. Talningafólk átti mikið verk fyrir höndum við að telja öll atkvæðin. Eftirlitsmenn munu fylgjast með að talning fari fram samkvæmt reglum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×