Erlent

Mjakast nær málamiðlun

Merkel og Kaczynski í brussel Sátu á rökstólum megnið af gærdeginum.
Merkel og Kaczynski í brussel Sátu á rökstólum megnið af gærdeginum. MYND/AP

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sem gegnir formennsku í Evrópusambandinu, eyddi öllum gærdeginum, síðari degi leiðtogafundar sambandsins í Brussel, í að telja Pólverja og aðra sem höfðu fyrirvara gegn áformum um nýja uppfærslu stofnsáttmála ESB á að falla frá þeim.

Nýi sáttmálinn, sem stefnt er að því að geti tekið gildi árið 2009, á að koma í staðinn fyrir svonefndan stjórnarskrársáttmála sambandsins sem strandaði fyrir tveimur árum er Frakkar og Hollendingar felldu hann í þjóðaratkvæðagreiðslum.

Pólverjar hafa ekki viljað fallast á nýjar reglur um atkvæðagreiðslur í ráðherraráði ESB, sem allar hinar aðildarþjóðirnar 26 hafa hins vegar fallist á að verði hluti sáttmálans. Breska stjórnin er einnig andvíg sumum þáttum hins áformaða sáttmála.

Eftir margra klukkustunda viðræður við Lech Kaczynski Póllandsforseta og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lagði Merkel fram málamiðlunartillögu sem þótti líkleg til að geta leitt til niðurstöðu. Meginatriði hennar voru sögð felast í því að Pólverjar fengju fleiri fulltrúa á Evrópuþinginu og nýja atkvæðagreiðslukerfið taki ekki gildi fyrr en árið 2014.

Undir kvöld sagðist hún vilja að samið yrði um sáttmálann, þrátt fyrir andstöðu Pólverja. Pólverjum yrði síðan gefinn kostur á að gangast undir hann síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×