Mjakast nær málamiðlun 23. júní 2007 07:00 Merkel og Kaczynski í brussel Sátu á rökstólum megnið af gærdeginum. MYND/AP
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sem gegnir formennsku í Evrópusambandinu, eyddi öllum gærdeginum, síðari degi leiðtogafundar sambandsins í Brussel, í að telja Pólverja og aðra sem höfðu fyrirvara gegn áformum um nýja uppfærslu stofnsáttmála ESB á að falla frá þeim. Nýi sáttmálinn, sem stefnt er að því að geti tekið gildi árið 2009, á að koma í staðinn fyrir svonefndan stjórnarskrársáttmála sambandsins sem strandaði fyrir tveimur árum er Frakkar og Hollendingar felldu hann í þjóðaratkvæðagreiðslum. Pólverjar hafa ekki viljað fallast á nýjar reglur um atkvæðagreiðslur í ráðherraráði ESB, sem allar hinar aðildarþjóðirnar 26 hafa hins vegar fallist á að verði hluti sáttmálans. Breska stjórnin er einnig andvíg sumum þáttum hins áformaða sáttmála. Eftir margra klukkustunda viðræður við Lech Kaczynski Póllandsforseta og Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lagði Merkel fram málamiðlunartillögu sem þótti líkleg til að geta leitt til niðurstöðu. Meginatriði hennar voru sögð felast í því að Pólverjar fengju fleiri fulltrúa á Evrópuþinginu og nýja atkvæðagreiðslukerfið taki ekki gildi fyrr en árið 2014. Undir kvöld sagðist hún vilja að samið yrði um sáttmálann, þrátt fyrir andstöðu Pólverja. Pólverjum yrði síðan gefinn kostur á að gangast undir hann síðar.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Sjá meira