Erlent

Bakslag í WTO-viðræðunum

Alvarlegt bakslag varð í tilraunum Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar WTO til að ná samkomulagi um alþjóðlegt viðskiptasamkomulag fyrir lok þessa árs, Doha-lotunni svonefndu, eftir að úrslitafundur fjögurra voldugustu meðlima stofnunarinnar fór út um þúfur í gær.

Fulltrúar Brasilíu og Indlands gagnrýndu Bandaríkin fyrir að vilja ekki skera nógu mikið niður þá milljarðastyrki sem bandarískir bændur fá árlega.

Fulltrúar ESB og Bandaríkjanna sögðu að hagvaxtarveldin Brasilía og Indland hefðu neitað að bjóða upp á ný markaðstækifæri fyrir útflutning iðnvarnings en hrósuðu hvort öðru fyrir að sýna sveigjanleika.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×