Erlent

Átökum um rauðu moskuna lokið

Átök í hálfan annan sólahring. Pakistanskir sérsveitarmenn snúa til baka eftir að hafa tekið þátt í árásinni á rauðu moskuna.
Átök í hálfan annan sólahring. Pakistanskir sérsveitarmenn snúa til baka eftir að hafa tekið þátt í árásinni á rauðu moskuna. MYND/AP

Óvíst er enn hvaða áhrif árásin á rauðu moskuna í Íslamabad mun hafa á álit landsmanna í Pakistan á Pervez Musharraf forseta. Töluvert hefur verið um mótmæli gegn honum síðustu daga.

Um 500 manns komu saman í Peshavar í gær og hrópuðu vígorð gegn forsetanum, og um fimmtán manns komu einnig saman framan við byggingu hæstaréttar í Íslamabad til að krefjast afsagnar Musharrafs.

„Aðgerðinni er lokið. Allir sem voru inni eru komnir út,“ sagði Shaukat Aziz, forsætisráðherra Pakistans, við blaðamenn að átökunum loknum snemma í gær. Hann sagði engin lík af konum eða börnum hafa fundist og taldi litlar líkur á að fleiri lík myndu finnast.

Meira en 50 herskáir múslimar og tíu hermenn létu lífið í átökunum, sem hófust fyrir dögun á þriðjudag og stóðu samfleytt í 35 klukkustundir.

Alls hafa átökin um moskuna, sem hófust snemma í síðustu viku, kostað meira en 80 manns lífið.

Einn af foringjum í pakistanska hernum sagði síðustu klukkustundir átakanna hafa farið þannig fram að hermenn fóru á milli herbergja í kjallara kóranskólans, sem er við hlið moskunnar, þar sem þeir sprengdu upp hvert fylgsni andstæðinga sinna á fætur öðru.

Stjórnvöld í Pakistan halda því fram að 1.300 manns, bæði karlar, konur og börn, hafi komið út úr byggingunum frá því að umsátrið hófst fyrir rúmri viku. Áður en innrásinni lauk var talið að hundruð manna gætu hugsanlega verið þar enn, og í gær voru margir foreldrar að leita að börnum sínum, inni í moskunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×