Erlent

Lestir skullu saman í Aþenu

Tugir særðust þegar farþegalest og flutningalest skullu saman í Aþenu í morgun. Að sögn lögreglu hefur flestum farþegunum verið náð út úr lestunum. Farþegalestin var á leið til miðborgar Aþenu full af fólki á leið til vinnu, þegar hún skall á flutningalestinni. Ekki urðu alvarleg slys á fólki. Ekki er vitað hvað olli slysinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×