Erlent

Dauðadómar staðfestir

Osman al-Bizanti verjandi hinna dæmdu.
Osman al-Bizanti verjandi hinna dæmdu. MYND/AP

Hæstiréttur í Líbíu staðfesti í gær dauðadóma frá undirrétti yfir fimm búlgörskum hjúkrunarfræðingum og palestínskum lækni, sem sögð voru sek um að hafa smitað meira en 400 börn af alnæmisveirunni.

Hæstiréttur hefur þó ekki endilega síðasta orðið í málinu, því dómsmálaráð Líbíu hefur vald til þess að ógilda eða staðfesta dóma, eða ákveða vægari refsingu. Dómsmálaráðherra landsins er í forsæti dómsmálaráðsins.

Utanríkisráðherra Líbíu segir að dómsmálaráðið muni koma saman á mánudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×