Kanna hvort íkveikjur teljist hryðjuverk 28. ágúst 2007 03:00 Gríðarlega margir slökkviliðsmenn hafa unnið að því að halda skógareldunum í Grikklandi í skefjum. AFP
Meira en 60 manns hafa látið lífið í skógareldunum í Grikklandi síðan á föstudag. Grunur leikur á að sumir eldarnir stafi af íkveikjum og hafa nokkrir menn verið handteknir, flestir sakaðir um að hafa kveikt í af gáleysi. Einn hefur þó verið ákærður fyrir íkveikju og morð í tengslum við bruna á föstudaginn í borginni Aeropolis, þar sem sex manns létust. Í gær hóf Dmitris Papangelopoulos saksóknari rannsókn á því hvort „glæpir brennuvarga og þær íkveikjuárásir sem framdar hafa verið sumarið 2007“ falli undir lög um hryðjuverkavarnir, en þá fengju lögregluyfirvöld víðtækari heimildir til að rannsaka og handtaka grunaða íkveikjumenn. Á sunnudaginn bauð ríkisstjórn Grikklands að veita verðlaun, sem nema einni milljón evra, hverjum þeim sem kemur með upplýsingar sem leiða til handtöku brennuvarga. Skógareldar urðu einnig í Grikklandi fyrr í sumar, en eldarnir núna eru þeir alverstu í manna minnum. Úti um allt Grikkland, allt frá Evros í norðri til eyjanna Korfu og Kefaloníu í vestri og allt suður á Pelópsskaga hefur mátt sjá gamla sem unga grípa garðslöngur, vatnsfötur og trjágreinar til að berja niður eldtungurnar í örvæntingarfullri tilraun til að bjarga húsunum sínum. Í þorpinu Artemida á vestanverðum Pelópsskaga dó kona ásamt fjórum börnum sínum. Þau hefðu bjargast ef þau hefðu haldið sig heima, því húsið þeirra var eina húsið sem stóð eftir óskemmt þegar eldurinn hafði farið hamförum um þorpið. „Þetta er gríðarlegt umhverfisslys,“ segir Theodota Nantsou hjá Alþjóðanáttúruverndarsjóðnum WWF. „Við höfum þessa eldfimu blöndu af óhagstæðum veðurskilyrðum, stráþurra skóga – svo annað eins hefur ekki sést árum saman – og svo hamslausir vindar síðustu tvær vikurnar. Þetta er uppskrift að bruna landsins alls.“ Eldarnir hafa vakið mikla reiði í Grikklandi og verða væntanlega eitt helsta hitamálið fyrir þingkosningarnar 16. september næstkomandi. Margir saka stjórnvöld um að hafa ekki brugðist nógu hratt við. Skógareldar hafa einnig geisað í sunnanverðri Búlgaríu og fórust þar tveir menn um helgina.
Mest lesið Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Innlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Innlent Fleiri fréttir „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Sjá meira