Sarkozy fær ótvírætt umboð til umbóta 19. júní 2007 06:00 Francois Fillon forsætisráðherra var settur í embætti af Sarkozy forseta í gær. MYND/AP
Þegar Frakkar flykkjast á ströndina í sumar munu þingmenn sem náðu kjöri í síðari umferð þingkosninganna í landinu um helgina, flestir úr íhaldsflokki Nicolas Sarkozy forseta, þurfa að sitja sveittir í París við að vinna að lagabreytingum sem miða að því að hrinda í framkvæmd boðaðri efnahagsumbótaáætlun forsetans. Sarkozy virðist hafa ótvírætt umboð til að hrinda þessum áformum í framkvæmd. En þó gæti komið til mótmæla og verkfalla gangi hann of langt. Fyrstu aðvörunarbjöllurnar hringdu með því að sósíalistar komu mun betur út úr síðari umferð þingkosninganna en búist hafði verið við, auk þess sem Alain Juppé, sem í raun var aðstoðarforsætisráðherra í ríkisstjórninni sem Sarkozy skipaði fyrir skemmstu, náði ekki inn á þing, sem kallar að öllum líkindum á snemmbúna uppstokkun í stjórninni. Juppé boðaði afsögn sína úr stjórninni. Sarkozy staðfesti Francois Fillon í embætti forsætisráðherra á fundi í gær, daginn eftir að kosningunum lauk. En jafnvel strax í dag, þriðjudag, er búist við að hann muni tilkynna um allt að tíu nýja aðstoðarráðherra, þar á meðal nokkra úr herbúðum stjórnarandstöðunnar, í því skyni að endurspegla „fjölbreytileika" Frakklands. Þrátt fyrir óvænta velgengni vinstrimanna í mörgum kjördæmum stóð Sarkozy, sem tók við embætti 16. maí, uppi eftir þingkosningarnar sem mjög sterkur leiðtogi, með ríkisstjórn, þing og fleiri helstu stofnanir ríkisins örugglega í höndum flokksmanna sinna. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1978 sem kjósendur staðfestu í embætti sömu stjórn og sat að völdum síðastliðið kjörtímabil. Mun þessi staða auðvelda Sarkozy að hrinda umbótamálum sínum í framkvæmd. UMP-flokkur Sarkozys fékk 345 af 577 sætum á þjóðþinginu, neðri deild Frakklandsþings. Á síðasta kjörtímabili hafði flokkurinn 359 þingmenn. Sósíalistar fengu 186 sæti og bandalag þeirra við fleiri vinstriflokka samtals 227 sæti, en það var talsvert meira en vænst hafði verið að þeir gætu náð í síðari umferð kosninganna. Alain Juppé datt út af þingi og hættir í stjórninni.MYND/AP Þrátt fyrir óvænta velgengni vinstrimanna í mörgum kjördæmum stóð Sarkozy, sem tók við embætti 16. maí, uppi eftir þingkosningarnar sem mjög sterkur leiðtogi, með ríkisstjórn, þing og fleiri helstu stofnanir ríkisins örugglega í höndum flokksmanna sinna. Þetta var í fyrsta sinn síðan árið 1978 sem kjósendur staðfestu í embætti sömu stjórn og sat að völdum síðastliðið kjörtímabil. Mun þessi staða auðvelda Sarkozy að hrinda umbótamálum sínum í framkvæmd. UMP-flokkur Sarkozys fékk 345 af 577 sætum á þjóðþinginu, neðri deild Frakklandsþings. Á síðasta kjörtímabili hafði flokkurinn 359 þingmenn. Sósíalistar fengu 186 sæti og bandalag þeirra við fleiri vinstriflokka samtals 227 sæti, en það var talsvert meira en vænst hafði verið að þeir gætu náð í síðari umferð kosninganna.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Trump: Khamenei látinn Erlent Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Illugi kjörinn formaður Ungra vinstri grænna Innlent Þau skipa lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík Innlent Snjókoma víða en bjart sunnan heiða Veður Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Erlent Fleiri fréttir Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Noregskonungur á sjúkrahús á Tenerife Íslendingar geti verið stoltir af stuðningnum við Úkraínumenn Sjá meira