Eggert minnkar við sig hjá West Ham Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. september 2007 16:29 Eggert Magnússon og Björgólfur Guðmundsson.
Í dag var það tilkynnt að nokkrar breytingar yrðu gerðar á stjórnkerfi enska úrvalsdeildarfélagsins West Ham sem er í eigu Íslendinga. Eggert Magnússon verður áfram stjórnarformaður félagsins en mun nú koma minna að daglegum rekstri félagsins. "Þetta hefur lengi staðið til. Nú þegar staða félagsins er góð, reksturinn stöðugur og útlitið bjart er góður tími til að keyra þessar breytingar í gegn," sagði Eggert í samtali við Vísi. Hann segir að síðan hann kom til félagsins hafi verið gríðarlega mikið á hans könnu og því sé þetta kærkomin breyting. "Þetta er búið að vera afar fjörlegur tími. Það hefur mikið gengið á, eins og stjóraskipti, fallslagurinn og allt Tevez-málið. Það verður áfram mikið að gera en nú gefst manni tími til að anda aðeins á milli." Meðal þeirra verkefna sem Eggert mun nú geta einbeitt sér betur að er þróun nýs heimavallar West Ham. "Ég verð áfram stjórnarformaður og stjórnin tekur allar stórar ákvarðanir sem að félaginu koma, eins og leikmannakaup." Í tilkynningu sem birtist á heimasíðu West Ham segir Björgólfur Guðmundsson, stjórnarformaður eignarhaldsfélags West Ham, að hann sé stoltur af því hverju hafi verið áorkað síðan að þeir komu að félaginu. "Ég er líka þakklátur Eggerti Magnússyni fyrir það starf sem hann hefur unnið í þágu félagsins. Það er nú mikilvægt að sinna langtímamarkmiðum okkar sem er að verða eitt af sterkustu félögum Englands sem berst um titla bæði innanlands sem og í Evrópu."
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Fram - Valur | Sögulegur fallslagur fyrir Val Íslenski boltinn Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti Víkingur - Þór/KA | Bæði lið í lífsbaráttu Íslenski boltinn „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Sjáðu fund Arnars og Ísaks fyrir slaginn við Búlgaríu Fótbolti Fleiri fréttir Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Sjá meira