Erlent

Eldingu laust niður tvisvar

Hinn 68 ára Don Frick varð fyrir eldingu á föstudag í annað sinn á ævinni. Hitt atvikið átti sér stað sléttum 27 árum áður.



„Ég er heppinn að vera á lífi,“ sagði Frick eftir atburðinn. Hann var staddur á útihátíð þegar veðrið breyttist skyndilega. Frick og fjórir aðrir, sem leituðu skjóls í kofa, urðu fyrir losti vegna eldingarinnar. Enginn slasaðist alvarlega, en gat kom á gallabuxur hans.

Í fyrra skiptið hafði hann verið að keyra vörubíl þegar eldingu sló niður í loftnet hans. Meiddist Frick þá illa í vinstri síðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×