Erlent

Blaðamönnum boðið til Gaza

Hamas-samtökin buðu í gær hópi erlendra blaðamanna í kynnisferð um Gaza-ströndina.Tilgangur ferðarinnar var að sýna fram á að svæðið væri „öruggt, hreint og grænt" eftir valdatöku Hamas-samtakanna.

Tvær loftkældar rútur blaðamanna fóru víðs vegar um svæðið. Fyrsta stopp var hús leiðtoga Hamas, Ismails Hanyeh, sem Hamas álíta enn forsætisráðherra. „Þetta er ekki ríkmannlegt heimili," sagði Asmar fararstjóri þegar rúturnar nálguðust húsið. Haniyeh býr meðal almennings í Shati-flóttamannabúðunum. Hann heilsaði gestunum frá svölunum.

Næst var haldið til híbýla Yassers heitins Arafat, stofnanda Fatah-hreyfingarinnar. „Það er á okkar ábyrgð að tryggja öryggi þessa húss," sagði einn Hamas-liði og bætti við að samtökin bæru virðingu fyrir Arafat og Fatah.

Næst var bústaður Abbas forseta heimsóttur. Hamas telja það skyldu sína að gæta hans „þar til sátt verður náð", sagði talsmaður.

Einnig heimsóttu blaðamenn þinghúsið, Miðstöð þjóðaröryggis, kaþólska kirkju og landamærastöð. Við ferðarlok hélt Haniyeh ræðu og ítrekaði að Hamas vildu ekki stofna íslamskt ríki á Gaza-ströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×