Erlent

Loka íslömsku vikublaði

Yfirvöld í Úsbekistan lokuðu í gær íslamska vikublaðinu Odam Orasida (Meðal fólksins), eftir því sem ritstjóri blaðsins segir.

Ástæða lokunarinnar var sögð vera brot blaðsins gegn fjölmiðlalögum landsins. Talsmaður yfirvalda vildi þó ekki skýra nánar hvað fólst í brotunum.

Er þetta eitt af mörgum skrefum yfirvalda undanfarin tvö ár í að hefta fjölmiðlafrelsi í landinu. Fyrir tveimur árum var meðal annars skrifstofum BBC og bandaríska útvarpsins Radio Freedom lokað. Þá hafa nokkrir erlendir blaðamenn verið handteknir á síðustu tveimur árum.

26 milljónir búa í Úsbekistan og er meirihluti þeirra múslímar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×