Erlent

Álag vegna englaumræðu olli veikindum Mörtu Lovísu

Ástæðan fyrir tveggja vikna veikindaleyfi sem Marta Lovísa noregsprinsessa hefur tekið sér er álag vegna fjölmiðlaumfjöllunar um meintar samræður hennar við engla. Þessu heldur blaðið Verdens Gang fram. Prinsessan vakti heimsathygli í síðustu viku þegar hún upplýsti að hún gæti talað við dýr og engla. Hún átti að lesa Pétur og Úlfinn fyrir skólabörn í Bodö í Noregi á fimmtudaginn, en aflýsti því vegna krankleika sem hún vildi ekki útskýra nánar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×