Rússar viðurkenna Abbas sem leiðtoga 31. júlí 2007 05:15 Hamas-samtökin buðu erlendum blaðamönnum í ferð um Gaza-svæðið í gær. Tilgangur ferðarinnar var að sýna fram á að Gaza-borg væri „örugg, hrein og græn“ eftir valdatöku Hamas. Nordicphotos/afp „
Við styðjum þig eindregið sem lögmætan leiðtoga Palestínumanna", tilkynnti Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, Mahmoud Abbas, forseta Palestínu, á blaðamannafundi í Moskvu í gær. Þetta er helsta stuðningsyfirlýsing rússneskra yfirvalda við Abbas frá því hann batt enda á þjóðstjórn Hamas-samtakanna og Fatah-hreyfingarinnar í síðasta mánuði, í kjölfar valdatöku Hamas-hreyfingarinnar á Gaza-svæðinu í júní. Nú ríkja í raun tvenn stjórnvöld yfir Palestínumönnum; Hamas á Gaza-svæðinu og Fatah á Vesturbakkanum. Heimsókn forsetans til Rússlands er liður í ákalli Fatah-hreyfingarinnar eftir stuðningi alþjóðasamfélagsins, og áframhald á valdabaráttu hennar við Hamas-hreyfinguna. „Ég er viss um að fundur þinn með Pútín forseta á morgun mun hjálpa til við að leggja línurnar um samstarf [...] sem og við þróun í friðarátt í Mið-Austurlöndum," sagði ráðherrann jafnframt. Rússland bætist þar með í hóp fjölmargra þjóða sem hafa veitt Fatah-hreyfingunni stuðning sinn en sniðgengið Hamas-hreyfinguna. Hamas var sigurvegari lýðræðislegra kosninga í Palestínu í fyrra, en Ísraelsmenn neita að eiga við samtökin og vísa til hryðjuverkaferils þeirra. Ísraelsmenn og Vesturveldin brugðust ókvæða við í fyrra þegar Rússar buðu leiðtogum Hamas til viðræðna í Moskvu. Voru viðræðurnar álitnar tilraun Rússa til að viðhalda mikilvægi sínu í Mið-Austurlöndum. Talsmaður Hamas-samtakanna gerði lítið úr mikilvægi yfirlýsingar rússneska ráðherrans í gær og sagði samtökin einnig telja Abbas lögmætan leiðtoga Palestínu. „Við vefengjum ekki lögmæti forsetans og köllum hann enn þá forseta," sagði Sami Abu Zuhri í gær. Hann fagnaði öllum íhlutunum Rússa sem gætu orðið í átt til sátta en gagnrýndi aftur Abbas forseta fyrir að taka ekki skilyrðislaust þátt í samningaviðræðum.
Mest lesið Gefst upp og flytur eftir sjö ára mótmæli Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Noem rekin Erlent Blöskrar viðbrögðin eftir tilnefningu fyrir mistök Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Komin með ógeð af því að hlusta á „hverja silkihúfuna á fætur annarri“ Innlent „Þessi umræða er rosalega niðurlægjandi“ Innlent Fleiri fréttir Handleggsbrotinn eftir átök við öldungardeildarþingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Sjá meira