Erlent

Oxford stræti lokað vegna elds

Frá Oxford stræti.
Frá Oxford stræti. MYND/AP

Meira en 150 slökkviliðsmenn í Lundúnum reyna nú að ná tökum á eldi í byggingu á Oxford stræti. Eldurinn kviknaði rétt fyrir klukkan sjö að staðartíma í kvöld. Götunni hefur verið lokað milli Oxford Circus og Tottenham Court Road. Samkvæmt lögreglu slasaðist enginn, en byggingin og nærliggjandi hús hafa verið rýmd.

Á fréttavef BBC segir að eldurinn hafi kviknað í íbúð í byggingu New Look tískuverslunarinnar rétt við Oxford Circus.

Slökkvilið kallaði til frekari mannafla til að ráða niðurlögum eldsins.

Að sögn talsmanns slökkviliðsins var eldurinn á þriðju hæð byggingarinnar þar sem einnig eru skrifstofur.

Haft er eftir sjónarvotti á BBC að eldtungur hafi teygt sig út úr byggingunni.

Orsakir eldsins eru ekki kunnar á þessari stundu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×