Enski boltinn

Nýju mennirnir klikkuðu hjá Liverpool

Aron Örn Þórarinsson skrifar

Portsmouth vann Asíubikarinn í dag þegar liðið hafði betur gegn Liverpool eftir vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og þá var farið beint í vítaspyrnukeppni. Fernando Torres og Yossi Benayoun misnotuðu báðir sínar spyrnur. Hermann Hreiðarsson tók víti fyrir Portsmouth og nýtti það. Portsmouth vann 4-2.

Fulham endaði í þriðja sæti keppnarinnar eftir að hafa valtað yfir S-Kína með fjórum mörkum gegn einu. David Healy, Brian McBride, Carlos Bocanegra og Papa Bouba Diop skoruðu fyrir Fulham.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×