Erlent

Þúsundir manna fagna 1. maí í Moskvu

MYND/AFP

Þúsundir manna söfnuðust saman á Rauða torginu í Moskvu í morgun til að fagna baráttudegi verkalýðsins. Fyrsti maí var mikill hátíðisdagur á tímum Sovétríkjanna en dregið hefur úr mikilvægi hans í hugum Rússa eftir fall kommúnismans.

Gangan í Moskvu í morgun var leidd af flokki Sameinaðs Rússlands og viðurkenndum verkalýðsfélögum þar í landi. Skipuleggjendur telja að um 25 þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðarhöldunum á Rauða torginu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×