Erlent

Nýr sáttmáli ríkja Evrópusambandsins

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, voru kampakát með niðurstöðuna.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, voru kampakát með niðurstöðuna. MYND/AFP

Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins náðu í gær samkomulagi um nýjan sáttmála eftir tveggja daga samningaviðræður í Belgíu. Sáttmálanum er ætlað að koma í stað stjórnarskrárinnar, sem til hafði staðið að innleiða.

Leiðtogar allra 27 aðildarríkjanna samþykktu sáttmálann, einnig Pólverjar, þrátt fyrir mikla andstöðu við hann áður fyrr.

„Ég er mjög ánægður,“ sagði Lech Kaczynski, forseti Póllands. „Við þurftum ekki að sætta okkur við neitt sem við vorum ekki hrifin af.“

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, leiddi viðræðurnar, en hún hafði gert það að forgangsverkefni að klára sáttmálann á meðan formennsku Þjóðverja stendur í Evrópusambandinu.

Markmið viðræðnanna var að endurvinna lykilatriðin úr stjórnarskrá ESB, sem hafnað var í þjóðaratkvæðagreiðslum í Hollandi og Frakklandi.

Helstu atriði nýja sáttmálans varða kosningakerfi ESB, ákvarðanatökuferli innan sambandsins og aukið vald þess til stefnumótunar.

Angela Merkel var ánægð í lok fundar og fagnaði því að lykilatriði stjórnarskrárinnar gengju í endurnýjun lífdaga í sáttmálanum. „Þetta sýnir að Evrópa getur náð saman að lokum,“ sagði hún.

Pólverjar höfðu mótmælt sáttmálanum frá upphafi fundarins og sögðu breytingar á kosningakerfinu minnka vægi Pólverja. Þeir hugðust beita neitunarvaldi, ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra.

Á föstudagskvöld sættust Pólverjar loks á tillögu sem var runnin undan rifjum Merkel og Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands.

Önnur ríki bentu einnig á atriði sem þeim líkaði ekki, en endanleg sátt náðist ekki fyrr en klukkan fimm um nóttina.

„Þetta gekk lengi á, en við höfum náð því sem við vildum,“ sagði Merkel á blaðamannafundi í gærmorgun.

Sáttmálinn verður að öllum líkindum samþykktur formlega í árslok.

„Ég held að ekkert geti hindrað þetta ferli núna,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. „Það mikilvægasta er að stjórnarskráin var lögð til hliðar. Þessi sáttmáli gefur okkur tækifæri til að líta fram á veginn,“ sagði Blair.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×