Nýr sáttmáli ríkja Evrópusambandsins 24. júní 2007 06:00 Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, voru kampakát með niðurstöðuna. MYND/AFP
Leiðtogar ríkja Evrópusambandsins náðu í gær samkomulagi um nýjan sáttmála eftir tveggja daga samningaviðræður í Belgíu. Sáttmálanum er ætlað að koma í stað stjórnarskrárinnar, sem til hafði staðið að innleiða. Leiðtogar allra 27 aðildarríkjanna samþykktu sáttmálann, einnig Pólverjar, þrátt fyrir mikla andstöðu við hann áður fyrr. „Ég er mjög ánægður,“ sagði Lech Kaczynski, forseti Póllands. „Við þurftum ekki að sætta okkur við neitt sem við vorum ekki hrifin af.“ Angela Merkel, kanslari Þýskalands, leiddi viðræðurnar, en hún hafði gert það að forgangsverkefni að klára sáttmálann á meðan formennsku Þjóðverja stendur í Evrópusambandinu. Markmið viðræðnanna var að endurvinna lykilatriðin úr stjórnarskrá ESB, sem hafnað var í þjóðaratkvæðagreiðslum í Hollandi og Frakklandi. Helstu atriði nýja sáttmálans varða kosningakerfi ESB, ákvarðanatökuferli innan sambandsins og aukið vald þess til stefnumótunar. Angela Merkel var ánægð í lok fundar og fagnaði því að lykilatriði stjórnarskrárinnar gengju í endurnýjun lífdaga í sáttmálanum. „Þetta sýnir að Evrópa getur náð saman að lokum,“ sagði hún. Pólverjar höfðu mótmælt sáttmálanum frá upphafi fundarins og sögðu breytingar á kosningakerfinu minnka vægi Pólverja. Þeir hugðust beita neitunarvaldi, ef ekki yrði gengið að kröfum þeirra. Á föstudagskvöld sættust Pólverjar loks á tillögu sem var runnin undan rifjum Merkel og Nicolas Sarkozy, forseta Frakklands. Önnur ríki bentu einnig á atriði sem þeim líkaði ekki, en endanleg sátt náðist ekki fyrr en klukkan fimm um nóttina. „Þetta gekk lengi á, en við höfum náð því sem við vildum,“ sagði Merkel á blaðamannafundi í gærmorgun. Sáttmálinn verður að öllum líkindum samþykktur formlega í árslok. „Ég held að ekkert geti hindrað þetta ferli núna,“ sagði Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands. „Það mikilvægasta er að stjórnarskráin var lögð til hliðar. Þessi sáttmáli gefur okkur tækifæri til að líta fram á veginn,“ sagði Blair.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Skiptu út Smjörva fyrir Bertolli: „Aurarnir vega þyngra“ Innlent Gerir stólpagrín að Von der Leyen Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Íslendingar óska eftir aðstoð Innlent Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Erlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Sjá meira