Erlent

Ákvörðun sögð nærri um lokun

Frá Guantanamo. Þar eru um 375 fangar enn í haldi.
Frá Guantanamo. Þar eru um 375 fangar enn í haldi. MYND/AP

Bandarísk yfirvöld eiga aðild að byggingu nýs fangelsis í Afganistan, þangað sem sumir af föngunum í fangelsinu umdeilda í herstöð Bandaríkjahers við Guantanamo-flóa á Kúbu kunna að verða fluttir. En talsmaður Hvíta hússins sagði í gær að fangelsinu í Afganistan væri ekki ætlað að koma í staðinn fyrir Guantanamo-fangelsið.

Vilji bandarískra yfirvalda stæði aftur á móti til að senda afganska ríkisborgara, sem eru í haldi sem „óvinveittir bardagamenn“ í Guantanamo, í fangelsi í Afganistan, þar sem þeir fengju mannúðlega meðferð en væri ekki „hleypt aftur út á vígvöllinn“.

Á fimmtudag lak það út að Bandaríkjastjórn væri að nálgast ákvörðun um að loka Guantanamo-fangelsinu og flytja fangana í önnur herfangelsi, þar á meðal í öryggisherfangelsið í Fort Leavenworth í Kansas, þar sem réttað kynni að verða yfir föngunum. Þetta hafði AP-fréttastofan eftir ónafngreindum heimildamönnum innan stjórnarinnar í Washington.

Áformað hafði verið að þjóðaröryggis- og lögfræðiráðgjafar George W. Bush forseta hittust til að ræða málið í fyrradag, föstudag, en eftir að orðrómurinn lak út lét Hvíta húsið þau boð út berast að ekkert yrði af fundinum og engin ákvörðun um framtíð Guantanamo-fangelsisins yrði tekin í bráð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×