Þriðja tilraunin til að lægja ófrið í Írak 7. febrúar 2007 06:15
Íraskur hershöfðingi tók yfir stjórn á öryggisgæslu í Bagdad og írösk lögregla og hermenn mönnuðu nýja vegatálma á mánudaginn. Þetta eru fyrstu skrefin í sameiginlegri aðgerð Íraka og Bandaríkjamanna sem miðar að því að koma böndum á blóðsúthellingar milli trúarhópa í landinu. Þetta er þriðja tilraunin á níu mánuðum til að lægja ófriðaröldur í Bagdad. Tvær fyrri öryggisaðgerðir mistókust og Bandaríkin kenndu íröskum stjórnvöldum um að standa ekki við að koma með þann mannafla sem þau höfðu lofað. Forsætisráðherra Íraks, Nouri al-Maliki, tilkynnti þessa nýjustu áætlun 6. janúar síðastiðinn og forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, lýsti sinni sýn á hana 11. janúar. Gert er ráð fyrir allt að 90.000 bandarískum og íröskum hermönnum auk íraskra lögreglumanna í áætluninni. Lengi hefur verið beðið eftir að þessari áætlun verði hrint í framkvæmd og gagrýnendur hafa sagt biðina hafa verið of langa. Al-Maliki viðurkenndi í gær að aðgerðin færi hægt af stað. „Aðgerðirnar munu sameina okkur og við munum grípa til aðgerða bráðlega, með Guðs vilja, jafnvel þótt ég hafi á tilfinningunni að við séum sein og að þessi seinkun sé farin að senda út neikvæð skilaboð." Heimildarmaður í innanríkisráðuneyti Íraks sagði á sunnudag að í seinustu viku einni hefðu í kringum eitt þúsund Írakar látist: borgarar, öryggissveitarmenn og vígamenn. Samkvæmt tölum sem AP fréttastofan safnaði saman frá lögreglu og úr yfirlýsingum stjórnvalda létust 911 manns í vikunni 28. janúar til 4. febrúar. Þar af létust 137 manns í einni sprengingu á laugardaginn sem er mannskæðasta staka sprengingin síðan stríðið hófst fyrir tæpum fjórum árum. Samkvæmt tölum frá Sameinuðu þjóðunum urðu samtals 34.452 borgarar fórnarlömb átaka á götum Bagdad árið 2006.
Mest lesið Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Innlent Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Innlent Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Erlent Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Á ekki von á neinni byltingu innan Framsóknarflokksins Innlent Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Innlent Fleiri fréttir Seldi Pokémon-spjald á yfir tvo milljarða Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Fluttu kjarnakljúf með flugvél í fyrsta sinn „Einræðisherrann“ aðstoðaði við handtöku eftirlýsta ólympíufarans Ætla einnig að draga úr vopnakaupum frá Bandaríkjunum „Þú stöðvar Pútín ekki með kossum og blómum“ Manntjón meðal almennings í Úkraínu jókst um 26 prósent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Fríska upp á kjarnorkumannvirki í laumi Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Sjá meira