Erlent

Malta og Kýpur taka upp evru

Evrópusambandið gaf í gær tveimur af nýju aðildarlöndunum, Möltu og Kýpur, heimild til þess að byrja að nota evruna um næstu áramót. Evrulöndin verða þar með orðin fimmtán.



Á Möltu og Kýpur býr samtals um ein milljón manna og verða þá íbúar í evrulöndunum orðnir 318 milljónir.



Hins vegar er lengra í að ákveðið verði hvenær hin stærri af nýjustu ESB-ríkjunum, það er Pólland, Ungverjaland, Tékkland, Rúmenía og Búlgaría, bætist við evrusvæðið. Samkvæmt aðildarsamningunum eru þau skuldbundin til þess þegar þau uppfylla öll skilyrði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×