Erlent

FBI auglýsir eftir njósnurum

Kínversk stjórnvöld þvertaka fyrir að vera með njósnara í Bandaríkjunum sem séu að reyna að skaða stjórnvöld. Þessi yfirlýsing kemur í kjölfar auglýsingar frá Alríkislögreglu Bandaríkjanna, FBI, sem birtist í kínverskum dagblöðum í San Francisco þar sem fólk var beðið að láta vita ef það hefði upplýsingar um njósnara sem hefðu illt í hyggju, sérstaklega frá Kína.



Talskona kínverska utanríkisráðuneytisins sagði hóp innan Bandaríkjanna reyna að kynda undir ótta um að ógn stafaði af Kína eftir því sem áhrif landsins á heimsvísu ykjust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×