Erlent

Tekinn af lífi fyrir mútur

Fyrrverandi yfirmaður matvæla- og lyfjastofnunar Kína var tekinn af lífi í gær. Talskona stofnunarinnar staðfesti fregnir af aftökunni á blaðamannafundi sem haldinn var til að undirstrika viðleitni til að bæta orðstír Kína varðandi öryggi matvæla og lyfja.



Zheng Xiaoyu var dæmdur til dauða fyrir að hafa þegið mútur fyrir að samþykkja lyf sem olli síðar að minnsta kosti tíu dauðsföllum.

Refsing Zhengs þykir óvenjulega þung, jafnvel í Kína þar sem talið er að aftökur í kjölfar dauðarefsinga séu fleiri en í öllum öðrum ríkjum heims samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×