Erlent

Blóðbaðið stóð yfir í aðeins níu mínútur

Morðinginn skaut 170 skotum á níu mínútum.
Morðinginn skaut 170 skotum á níu mínútum.

Það tók Seung-Hui Cho aðeins níu mínútur að skjóta 170 skotum þegar hann myrti tugi samnemenda sinna við Virginia Tech háskólann í síðustu viku. Lögreglan greindi í dag frá nýjum atriðum sem komið hafa fram við rannsókn skotárásarinnar, sem er ein sú mannskæðasta í sögu landsins.

 

„Þrjár mínútur liðu frá því fyrsta neyðarkall barst og þar til lögreglumenn komu á staðinn," sagði lögreglustjóri Virginia Tech háskólans, Wendell Flinchum á blaðamannafundi í dag. Fimm mínútum síðar hafði lögeglunni tekist að brjóta upp dyrnar sem Choi hafði læst með keðju en hann hafði læst þremur hurðum að byggingunni. „Þegar lögreglumennirnir voru á leiðinni upp á aðra hæð byggingarinnar heyrðu þeir síðasta skotið þegar Choi tók eigið líf," sagði Flinchum. Alls voru 32 myrtir í skotárásinni og um 50 særðust.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×