Rútan steyptist fram af afrein 4. mars 2007 04:00 Rútan fór í gegnum vegrið áður en hún steyptist niður á hraðbraut fyrir neðan þar sem hún lenti á hliðinni. MYND/AP
Sex manns létust í gærmorgun í Atlanta þegar rúta með körfuboltalið háskólanema frá Ohio í Bandaríkjunum innanborðs fór í gegnum vegrið á afrein, steyptist fram af og lenti á fjölfarinni hraðbraut fyrir neðan. Fjórir nemendur voru meðal hinna látnu ásamt bílstjóra rútunnar og eiginkonu hans. Alls hlutu 29 farþegar meiðsli í slysinu, þar af eru þrír lífshættulega slasaðir. Slökkviliðsmenn þurftu að draga farþegana út um glugga á þaki rútunnar, sem lá á hliðinni á veginum. Þegar rútan fór fram af lenti hún framan á pallbíl á hraðbrautinni og sagðist bílstjóri pallbílsins hafa haldið að steypuplata væri að falla ofan á sig. „Ég sá ekki að þetta var rúta. Ég held að þegar ég sá þetta koma hafi ég lokað augunum og stigið á bensínngjöfina.“ Framhluti pallbílsins laskaðist en bílstjórinn slapp án meiðsla. Að sögn talsmanns lögreglunnar er talið líklegt að orsök slyssins hafi verið sú að ökumaður rútunnar hafi ruglast og haldið að afreinin væri akrein. Ekki hafði enn birt af degi þegar slysið varð. Körfuboltaliðið, sem kom frá Bluffton-háskóla í Ohio, var á leið til Flórída þar sem það átti að keppa um helgina.
Mest lesið Andrew handtekinn á heimili sínu Erlent „Ekki af hinu góða og líklegra til að valda skaða“ Innlent „Hann reyndi að lokka þær inn í bílinn“ Innlent Tvö innbrot á einni viku: Þýfi upp á aðra milljón Innlent Forstjóri Deloitte sýknaður af ákæru fyrir kynferðisbrot Innlent Guðmundi Inga hafnað Innlent Það sem farþegarnir sjá ekki í innanlandsfluginu Innlent Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Erlent „Við systkinin erum bara vinnandi fólk“ Innlent Árekstur á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Nýjar forsetaflugvélar fá Trump-litina „Besti vinur“ Epsteins ætlaði að leysa frá skjóðunni 2016 Karl III: Réttlætið verður að hafa sinn gang Viðbúnaðurinn ekki verið eins mikill frá innrásinni í Írak Andrew handtekinn á heimili sínu Rétta yfir fjórtán ára gömlum leigumorðingja Tjáningarfrelsistal tæknirisa „hreinn þvættingur“ „Grunlaus“ Wexner segist hafa verið gabbaður af Epstein Skíðahópur fórst í snjóflóði í Kalíforníu Fyrrverandi forseti Suður-Kóreu í lífstíðarfangelsi Umdeilt Friðarráð fundar í Washington í dag Tengiltvinnbílar þrefalt eyðslufrekari en framleiðendur segja Verjast fregna af viðræðum dagsins „Stjórinn“ að fá nóg og líkur á árásum Kennir Selenskí um misheppnaða gagnsókn Þrýsta á Alþjóðaorkumálastofunina að hætta við orkuskipti Reyna aftur á morgun Ákærður fyrir að skilja kærustuna eftir á fjallinu Yfir þúsund grunaðir barnaníðingar handteknir í hverjum mánuði Segir Trump setja ósanngjarnan þrýsting á Úkraínu Viðræður gengu ágætlega en ekkert fast í hendi Friðrik leggur land undir fót til að stappa stálinu í Grænlendinga Lindsay Graham hafi hellt sér yfir Frederiksen og sagt Trump geta tekið Grænland Bandarískir hermenn í Nígeríu Colbert bannað að birta viðtal við Demókrata Skutu eldflaugum á Hormuz-sund þegar viðræður hófust Reyna að stöðva ein átök og koma í veg fyrir önnur Mannréttindafrömuðurinn Jesse Jackson látinn Gamall sófi og múrsteinar komu upp um barnaníðing Viðræður Írana og Bandaríkjamanna að hefjast í Genf Sjá meira