Enski boltinn

Nigel Martyn ver Robinson

Elvar Geir Magnússon skrifar
Paul Robinson.
Paul Robinson.

Nigel Martyn, fyrrum landsliðsmarkvörður Englands, hefur mikla trú á Paul Robinson sem er núverandi landsliðsmarkvörður. Robinson hefur mikið verið í umræðunni enda verið allt annað en öruggur í sínum aðgerðum að undanförnu.

„Að mínu mati á hann að sjálfsögðu að vera í markinu gegn Eistlandi og Rússlandi. Hann er með þá reynslu sem við þurfum á að halda," sagði Martyn.

Hann telur að atvikið síðan í október á síðasta ári sé enn að herja á Robinson. Þá gaf Robinson mark gegn Króatíu þegar Gary Neville ætlaði að senda til baka á hann.

„Hann hefur enn ekki náð upp sjálfstraustinu sem hann hafði," sagði Martyn en Robinson, sem leikur með Tottenham, hefur mikið verið gagnrýndur að undanförnu. Sérstaklega eftir 4-4 jafntefli liðsins gegn Manchester City.

England mætir Eistlandi á Wembley á laugardag og Rússlandi nokkrum dögum síðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×