Martins er maður 1. umferðar í Englandi 12. ágúst 2007 23:02 Obafemi Martins átti frábæran leik með Newcastle gegn Bolton í gær.
Nígeríski framherjinn Obafemi Martins, sem leikur með Newcastle, er leikmaður 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Martins fór á kostum þegar Newcastle bar sigurorð af Bolton, 3-1, og skoraði tvö mörk. Fyrra markið var sérstaklega glæsilegt, bakfallsspyrna úr miðjum teig sem Jussi Jaaskalainen, markvörður Bolton, átti ekki möguleika að verja. Obafemi Martins, sem er fæddur í Lagos árið 1984, vakti fyrst athygli í unglingaliði ítalska félagsins Reggiana þegar hann var fimmtán ára gamall. Ári seinna var hann keyptur af stórliði Internazionale fyrir 50 milljónir og það tók hann aðeins eitt ár að vinna sig upp í aðallið Inter. Martins, sem verður 23 ára, var aðeins nýorðinn átján ára þegar hann lék sinn fyrsta leik fyrir Inter í desember 2002 gegn Parma. Þrátt fyrir fína frammistöðu tókst honum ekki að festa sig í sessi í aðalliði Internazionale og sumarið 2006 varð ljóst að dagar hans hjá félaginu voru á enda. Þá kom Argentínumaðurinn Hernan Crespo á láni frá Chelsea og Svíinn Zlatan Ibrahimovic var keyptur frá Juventus. Í kjölfarið var Martins seldur til Newcastle fyrir 10, milljón punda. Miklar vonir voru bundnar við þennan unga framherja og ekki minnikaði pressan þegar ljóst var að að hann tæki við treyju númer 9 af sjálfum Alan Shearer. Martins byrjaði illa með Newcastle en fann sig betur eftir því sem líða tók á tímabilið. Hann skoraði 17 mörk í 46 leikjum fyrir félagið. Byrjunin í ár gæti ekki verið betri. Tvö mörk gegn Bolton og í þeim leik kom allt fram sem gerir Martins að einum hættulegasta framherja ensku úrvalsdeildarinnar. Hann er eldfljótur, gríðarlega sterkur og mjög skotharður. Það skemmir heldur ekki fyrir að hann fagnar mörkum sínum með slíkum tilþrifum að fimleikmaður í gólfæfingum á Ólympíuleikunum myndi ekki skammast sín fyrir það. Ég er: Nafn: Obafemi Martins Aldur: 23 ára Félög: Internazionale (Ítalíu) og Newcastle. Númer: 9 Leikir/mörk í úrvalsdeildinni: 32/13* Landsleikir/mörk: 17/11 *frá og með 12. ágúst 2007
Mest lesið Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Enski boltinn Fyrrverandi landsliðsmaður drukknaði Fótbolti Er hik í vítaspyrnum að láta leikmenn klúðra þeim? Fótbolti Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Enski boltinn Árni Vilhjálms í Stjörnuna Íslenski boltinn Tímabilinu lokið hjá Elíasi sem sótti að markametinu Íslenski boltinn Spánn - Belgía | Hverjir ætla að vaða í Frakka? Fótbolti Evrópu-Emil: Æðislegt að setja þrjú mörk í Evrópu Fótbolti María að gera Þóri að afa Fótbolti Fleiri fréttir Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Önnur risastór breyting á þeim sem stýra Liverpool Manchester City kaupir efnilegan markvörð Stjarna úr ensku úrvalsdeildinni keyrði niður konu Newcastle yngir upp á sumri breytinga Arsenal fær Meslier frá Leeds Amorim viðurkenndi mistök og bað stuðningsmenn United afsökunar Fyrsti leikurinn er auðvitað á móti Xabi Alonso Haaland orðinn stærri en Manchester City Ein stærstu félagaskiptin í sögu kvennaknattspyrnunnar Bruno Guimaraes tilkynnir Newcastle að hann vilji fara til Arsenal Manchester United kaupir annan Brassa á miðjuna Arbeloa nýr stjóri Fulham og vill taka leikmenn með sér frá Real Madrid Hildur til Newcastle Sleit krossband í sigrinum gegn Bandaríkjunum Newcastle ætlar að nota Tonali-peningana til að kaupa eina af ungu stjörnum HM Kaupa George frá Chelsea Til Tottenham fyrir sautján milljarða Fimmti stjóri Forest á einu ári Skera niður hjá stelpunum Hvað er að gerast hjá Manchester United? Stórhuga Spursarar að kaupa Tonali á metverð Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Verður sá dýrasti í sögu Tottenham Klopp reiður: „Ef þetta er brot þá hefði Arsenal ekki orðið Englandsmeistari“ Chelsea með harðorða yfirlýsingu um nýjan stjóra Man. City Manchester City staðfestir loksins Maresca sem stjóra Newcastle með augastað á efnilegum miðjumanni Freiburg Chelsea horfir óvænt til varnarmanns Rayo Vallecano Sjá meira