Enski boltinn

United rústaði Aston Villa

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Scott Carson fékk að líta rauða spjaldið í dag.
Scott Carson fékk að líta rauða spjaldið í dag. Nordic Photos / Getty Images

Manchester United átti ekki í teljandi vandræðum með Aston Villa á útivelli í dag. United vann, 4-1.

Gabriel Agbonlahor kom reyndar heimamönnum yfir í leiknum með góðum skalla á nærstöng en sendingin kom frá Ashley Young á vinstri kantinum. Mark Agbonlahor var 400. mark Villa í ensku úrvalsdeildinni.

Craig Gardner átti svo gott skot yfir slána skömmu síðar og virtust Villa-menn vera til alls líklegir.

Carlos Tevez fékk svo kjörið tækifæri til að jafna en skot hans var vel varið af Scott Carson, markverði Villa.

Hann gat þó ekki komið í veg fyrir að Wayne Rooney skoraði fyrsta mark United en Zat Knight hafði ekki náð að hreinsa boltann frá marki eftir fyrirgjöf Nani.  

Aðeins nokkrum mínútum síðar bætti Rooney við öðru marki, í þetta sinn eftir sendingu Tevez.

Til að bæta gráu á svart tókst Craig Gardner að skora sjálfsmark undir lok fyrri hálfleiks. Gerald Pique átti skalla að marki en Ashley Young bjargaði á línu. Rio Ferdinand náði frákastinu og skaut að marki. Gardner reyndi að hreinsa í burtu en skaut knettinum í eigið net.

Villa reyndi að klóra í bakkann í upphafi síðari hálfleiks en þökk sé rauða spjaldinu sem Nigel Reo-Coker náði sér í fljótlega í hálfleiknum náði Villa sér aldrei á strik. Reo-Coker fékk sitt annað gula spjald í leiknum fyrir að brjóta á Anderson.

Ekki löngu síðar fékk Scott Carson rautt fyrir að brjóta á Tevez í teignum. Vítaspyrna dæmd og lét Wayne Rooney verja frá sér. Stuart Taylor kom ískaldur inn í leikinn en varði vítið vel.

Taylor stóð sig vel í leiknum en gat þó ekki komið í veg fyrir sjálfsmark Martin Laursen. Ryan Giggs átti skot að marki en Laursen var sá síðasti sem kom við boltann og stýrði honum yfir Laursen og í markið. 

United er nú í öðru sæti í deildinni, tveimur stigum á eftir Arsenal. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×