Enski boltinn

Liverpool vann borgarslaginn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Dirk Kuyt skorar út annarri vítspyrnu sinni í leiknum.
Dirk Kuyt skorar út annarri vítspyrnu sinni í leiknum. Nordic Photos / Getty Images

Tvær vítaspyrnur færðu Liverpool sigur gegn Everton á Goodison Park. Dirk Kuyt skoraði bæði mörk Liverpool en mark Everton var sjálfsmark Sami Hyypia.

Sjálfsmarkið kom á 37. mínútu leiksins og var nokkuð slysalegt. Greinilegt var að Hyypia ætlaði að hreinsa frá marki en hitti boltann svo illa að hann hafnaði í eigin neti.

Á 54. mínútu komst svo Steven Gerrard inn fyrir vörn Everton en Tony Hibbert braut á honum. Hibbert fékk rauða spjaldið fyrir og vítaspyrna dæmd sem Kuyt skoraði úr.

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, tók svo umdeilda ákvörðun á 72. mínútu. Hann skipti fyrirliðanum Gerrard út af og setti Brasilíumanninn Lucas Leiva inn á í fyrsta skiptið í hans ferli.

Ákvörðunin átti þó eftir að bera árangur því það var Leiva sem átti skot að marki úr vítateig Everton sem Phil Neville varði með hönd sinni á marklínu Everton-marksins. Hann fékk vitanlega að líta rauða spjaldið og vítaspyrna var dæmd.

Kuyt skoraði úr henni en Tim Howard, markvörður Everton, var afar nálægt því að verja spyrnuna.

Leikmenn og stuðningsmenn Everton voru svo afar ósáttir við að Mark Clattenburg, dómari, skuli ekki hafa dæmt vítaspyrnu Everton í hag á lokamínútu leiksins. Sjónvarpsendursýning af atvikinu sýndu svo ekki var um villst að Jamie Carragher, varnarmaður Liverpool, dró Joleon Lescott í grasið.

Fernando Torres var ekki með Liverpool vegna meiðsla og hið sama má segja um Tim Cahill, Thomas Gravesen og James Vaughan, leikmenn Liverpool.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×