Sífellt fleiri vilja afsögn 25. janúar 2007 05:00 Moshe Katsav. Forseti Ísraels kemur ásamt eiginkonu sinni frá heimili dóttur þeirra, nokkru áður en hann ávarpaði þingið og bauðst til að víkja tímabundið úr embætti. MYND/AP
Moshe Katsav, forseti Ísraels, baðst í gær lausnar frá embætti um stundarsakir. Sífellt fleiri krefjast þess þó að hann segi einfaldlega af sér vegna ásakana fjögurra kvenna um að hann hafi áreitt þær kynferðislega og misnotað völd sín. Á þriðjudaginn tilkynnti Meni Mazuz, aðalsakóknari Ísraels, forsetanum það á þriðjudag að hann yrði ákærður fyrir nauðganir og fyrir að misnota völd sín. Ákæra verður þó ekki lögð fram fyrr en forsetinn hefur fengið tækifæri til að svara ásökunum á hendur sér. Hann hefur jafnan neitað sekt og sagt kærurnar lið í pólitísku sam-særi gegn sér. Katsav sagðist í gær ófær um að gegna embætti meðan mál hans væri fyrir dómstólum og bað þingið um að veita sér tímabundna lausn úr embætti, allt upp í þrjá mánuði. Fjórar konur sem allar hafa starfað hjá Katsav, ýmist eftir að hann varð forseti eða áður, þegar hann gegndi veigalitlu ráðherraembætti, hafa kært hann fyrir nauðganir og kynferðislega áreitni. Tzipi Livni, utanríkis- og dómsmálaráðherra, bættist í gær í hóp þeirra sem krefjast þess að Katsav segi af sér. Í gær höfðu þrjátíu þingmenn undirritað beiðni til þingnefndar um að kanna hvort rétt væri að kæra hann til embættismissis, en alls þurfa 90 þingmenn að krefjast afsagnar forseta til þess að honum verði vikið úr embættinu. Livni sagði að vissulega teldist Katsav saklaus þangað til sekt sannaðist, en bætti við að „hann ætti ekki að berjast fyrir því að sanna sakleysi sitt frá forsetaskrifstofunni“. Ákærur kvennanna urðu fyrst heyrinkunnar síðastliðið sumar og Katsav hefur lítið komið fram opinberlega síðan.
Mest lesið Bein útsending: Barist um formennsku í Framsóknarflokknum Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Innlent Tölvuárás á Grund: Afrituðu gögn um tugi þúsunda manns Innlent Rósin segir sig úr fulltrúaráði Samfylkingarinnar Innlent Fleiri fréttir Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Sjá meira