Nóbelsverðlaunahafa hótað 25. janúar 2007 03:00 Yasin Hayal hótaði fleiri morðum þegar hann var leiddur í réttarsalinn. MYND/AP
Einn þeirra sem grunaðir eru um að hafa hvatt til morðsins á tyrknesk-armenska blaðamanninum Hrant Dink hefur nú hótað Nóbelsverðlaunahafanum Orhan Pamuk. „Orhan Pamuk, vertu klár, vertu klár!“ hrópaði Yasin Hayal þegar hann var færður til dómshúss í Istanbúl í gær. Hayal hefur viðurkennt að hafa hvatt til morðsins á Hrant Dink í síðustu viku. Einnig hefur hann viðurkennt að hafa útvegað meintum morðingja bæði byssu og peninga. Sá sem grunaður er um morðið er atvinnulaus unglingur, Ogun Samast að nafni, sem hefur þegar játað á sig morðið. Samast sagði að Hayal hefði sagt sér að Dink væri föðurlandssvikari og þjóð-níðingur. Hayal hafi fengið sér bæði peninga og mynd af Dink, sem hann hafi borið á sér mánuðum saman. Hrant Dink var tyrkneskur ríkisborgari af armenskum uppruna og hafði nokkrum sinnum verið ákærður fyrir „þjóðníð“ í Tyrklandi vegna þess að hann hafði opinskátt kallað fjöldamorð á Armenum snemma á 20. öldinni þjóðarmorð. Orhan Pamuk, sem hlaut Nóbelsverðlaunin í bókmenntum á síðasta ári, hefur einnig rætt opinskátt um þjóðarmorðið á Armenum. Hann hefur eins og Dink bæði verið ákærður fyrir „þjóðníð“ og fengið morðhótanir. Saksóknari í Tyrklandi tilkynnti í gær að fimm manns, þar á meðal Samast og Hayal, hefðu verið ákærðir fyrir morðið á Dink.
Mest lesið Bein útsending: Lilja formaður eftir spennandi flokksþing Innlent „Við erum áratugum of sein“ Innlent Lilja Alfreðsdóttir er nýr formaður Framsóknarflokksins Innlent Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Erlent „Ég er heppin að hafa ekki brotnað“ Innlent Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Erlent „Hrækjandi drullu eins og maður sé að steypa án grímu“ Innlent „Það gekk alls konar á en ég er sátt við mína kosningabaráttu“ Innlent „Erfitt fyrir formann að taka við sitjandi utan þings“ Innlent Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Erlent Fleiri fréttir Drápu þúsundir í „fordæmalausri“ ofbeldisöldu Obama um apamyndbandið: Ákveðin „trúðasýning“ og skortur á sómakennd Telur Trump enn girnast Grænland Veiktist er hann reyndi að afsanna Havana-heilkennið Eitrað fyrir Navalní með froskaeitri „Því sterkari sem við erum, því raunhæfari verður friður“ Tekur við formannsembættinu í skugga Epstein-tengsla Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Mildari tónn en sama innihaldið: Sagði Evrópu „hlekkjaða af sektarkennd og skömm“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni Lak trúnaðargögnum um Icesave til viðskiptamógúls Skotinn til bana við að ógna lögreglumönnum með hníf og skærum Spyrja sig hvort Evrópa geti treyst Bandaríkjamönnum Stærsta flugmóðurskip heims sent aftur til Mið-Austurlanda Evrópa getur ekki dvalið í veröld sem var og þarf að vopna sig Mótmæla banni gegn grænkera „pylsum“ og „hamborgurum“ Gróðurhúsalofttegundir ekki lengur skaðlegar samkvæmt Trump Sektuð um 23 þúsund krónur vegna tréspíramálsins ICE dregur saman seglin í Minneapolis Lofaði öllu fögru í von um sendiherraembættið Greiða atkvæði um hámarksfjölda Svisslendinga Jagland ákærður fyrir spillingu Sprengdu blöðrur með herleysigeisla áður en lofthelginni var lokað Táningsdóttir Kims formlegur arftaki hans Pútín þjarmar að vinsælasta samfélagsmiðli Rússlands Íhugar að senda annað flugmóðurskip til Mið-Austurlanda Efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um þak á íbúafjölda landsins Gallup hættir að mæla ánægju með Bandaríkjaforseta eftir níutíu ára samfellda sögu Fulltrúadeildin samþykkir að fella niður tolla Trump gegn Kanada Leita fórnarlamba fransks barnaníðings sem braut á börnum um allan heim Sjá meira