Wenger sáttur en Roeder brjálaður 9. apríl 2007 19:52 Það var hiti í leikmönnum Newcastle og Arsenal í dag. MYND/Getty
Arsene Wenger, stjóri Arsenal, er sannfærður um að lærisveinar sínir nái hinu dýrmæta fjórða sæti úrvalsdeildarinnar, sem gefur sæti í Meistaradeildinni, þrátt fyrir að liðið hafi ekki náð að sigra í síðustu fjórum deildarleikjum sínum. Glen Roeder, stjóri Newcastle, var æfur út í dómara leiksins fyrir að loka augunum fyrir því sem hann taldi augljósa vítaspyrnu. Arsenal er ennþá með eins stigs forskot á Bolton en á auk þess tvo leiki til góða. Liðin mætast innbyrðis um næstu helgi í leik sem mun ráða miklu um framhaldið. Aðspurður um hvort hann teldi sína menn geta hangið á fjórða sætinu til loka tímabils sagðist Wenger sannfærður um að svo væri. “Jafntefli Bolton í dag þýðir að við höfum enn gott forskot svo að já, ég tel að staða okkar sé góð. Við ráðum sjálfir örlögum okkar. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir alla þá sem koma að félaginu að ná þessu Meistaradeildarsæti. Við erum vanir að vera með í þeirri keppni og langar að vera það áfram,” sagði Wenger eftir leikinn. “Eftir þrjá tapleiki í röð var það mikilvægt fyrir okkur að tapa ekki aftur, svo að heilt yfir er ég nokkuð sáttur við annað stigið. Það gæti reynst okkur mikilvægt. Annars var þetta leikur tveggja góðra varna og tækifærin voru ekki mörg,” sagði Wenger. Kollegi hans hjá Newcastle, Glenn Roeder, var æfur út í Howard Webb, dómara leiksins, fyrir að dæma ekki vítaspyrnu undir lokin þegar Abou Diaby hindraði Oguchi Onyewu í að komast til boltans með aðferðum sem Roeder sagði að ættu frekar heima í ruðningsleik. “Þetta var tækling sem við sjáum í ruðningi. Tel ég að við hefðum hugsanlega átt að fá víti? Það er eins vægt til orða tekið og hugsast gæti. Þetta var svo augljós vítaspyrna að það er engu líkt,” sagði Roeder hinn fúlasti. Það þarf kjark og hugrekki til að flauta vítaspyrnu, ég geri mér grein fyrir því. En dómarar verða að geta tekið á svona brotum. Svona má ekki gera í fótbolta,” bætti Roeder við.
Enski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sjáðu þegar upp úr sauð á fundi Heimis Fótbolti Ísland - Búlgaría | Tengir landsliðið saman tvo sigra? Fótbolti „Ég get alveg sagt þér að hann er ekki sáttur“ Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Sex breytingar: Aron Einar byrjar og Gylfi á bekkinn Fótbolti Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira