Erlent

Flutti ræðu í Najaf

Muktada Al Sadr krefst þess að Bandaríkjamenn fari frá Írak en fordæmir innbyrðis átök landsmanna.
Muktada Al Sadr krefst þess að Bandaríkjamenn fari frá Írak en fordæmir innbyrðis átök landsmanna. MYND/AP

Sjíaklerkurinn Muktada al Sadr kom fram opinberlega í Najaf í gær í fyrsta sinn í fjóra mánuði og flutti þar á trúarsamkomu þrumuræðu gegn Bandaríkjunum. Hann krafðist þess að bandarískir hermenn færu frá Írak en fordæmdi jafnframt innbyrðis átök landsmanna.

Al Sadr hefur verið í felum, að öllum líkindum í Íran, undanfarna fjóra mánuði. Ekki er alveg ljóst hvers vegna hann valdi að koma fram á sjónarsviðið núna. Hugsanlegt er að hann vilji notfæra sér fjarveru helsta mótherja síns meðal sjía-múslima í Írak, Abdul-Aziz al-Hakim, sem nýverið greindist með lungnakrabbamein.

Al Sadr sagði átök milli liðsmanna í Mahdi-hernum, sem er eins konar einkaher hans sjálfs, og írösku öryggissveitanna einungis „þjóna hagsmunum hernámsliðsins“. Þess í stað hvatti hann liðsmenn Mahdi-hersins til að snúa sér að friðsamlegum mótmælum gegn hernáminu.

Mahdi-herinn barðist lengi vel af mikilli hörku gegn bandaríska herliðinu en eftir að sameiginlegt átak bandarískra og íraskra hermanna gegn uppreisnarmönnum í Bagdad hófst í vetur skipaði hann herliði sínu að draga sig í hlé.

Í síðasta mánuði sögðu stuðningsmenn al Sadrs sig úr ríkisstjórn Íraks. Svo virðist sem al Sadr geri sér vonir um að stjórnin falli áður en langt líður vegna þess hve hægt miðar í að koma á friði í Bagdad og um land allt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×