Erlent

Getur valið samstarfsflokk

Vegna þess hve flókið kosningakerfið á Írlandi er verða úrslit kosninganna á fimmtudag varla ljós fyrr en í dag, eða jafnvel eftir nokkra daga.
Vegna þess hve flókið kosningakerfið á Írlandi er verða úrslit kosninganna á fimmtudag varla ljós fyrr en í dag, eða jafnvel eftir nokkra daga. MYND/AP

Samkvæmt fyrstu tölum úr þingkosningunum á Írlandi bendir allt til þess að Fienna Fail, flokkur Bertie Aherns forsætisráðherra, hafi unnið meiri sigur en búist var við og jafnvel bætt við sig þingmönnum frá síðasta þingi.

Búist er við að Fienna Fail hljóti um það bil 80 þingmenn, en til að hafa meirihluta þingi þarf 83 þingmenn þannig að Fienna Fail ætti að geta myndað stjórn með litlum flokki eða nokkrum óháðum þingmönnum.

Lýðræðisflokkurinn, sem hefur verið í stjórnarsamstarfi með Fienna Fail, virðist hins vegar hafa beðið mikið afhroð i kosningunum.

Ahern hefur verið þingmaður frá árinu 1977 og forsætisráðherra frá árinu 1997. Hann náði afburða góðri kosningu í kjördæmi sínu í Dublin; hlaut 12.734 atkvæði, sem er meira en helmingi meira en þurfti til að lenda í efsta sæti í því kjördæmi.

Þingkosningarnar fóru fram á fimmtudag en talning atkvæða hófst ekki fyrr en í gærmorgun. Úrslit ættu að liggja nokkurn veginn fyrir í dag, þótt endanlegar tölur verði varla komnar á hreint fyrr en eftir nokkra daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×