Erlent

Hafnar þjóðkjöri forseta landsins

Recep Tayyip Erdogan Forsætisráðherra Tyrklands hefði helst viljað að forsetakjör gæti orðið um leið og þingkosningar nú í sumar.
Recep Tayyip Erdogan Forsætisráðherra Tyrklands hefði helst viljað að forsetakjör gæti orðið um leið og þingkosningar nú í sumar. MYND/AP

Ahmet Necdet Sezer, forseti Tyrklands, beitti í gær neitunarvaldi sínu gegn stjórnarskrárbreytingu um að forseti landsins verði þjóðkjörinn.

Stjórnarskrárbreytingin kemur því aftur til meðferðar þingsins, sem líklega samþykkir hana óbreytta í næstu viku. Forsetinn getur ekki beitt neitunarvaldi sínu öðru sinni, en neiti hann að skrifa undir lögin verða þau lögð undir dóm kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu.

Afstaða forsetans kom ekki á óvart, en þykir þó nokkurt áfall fyrir Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra, sem hafði vonast til þess að hægt yrði að halda forsetakosningar og þingkosningar samtímis hinn 22. júlí næstkomandi.

Seser forseti segir stjórnarskrárbreytinguna ekki samræmast lýðræðislegri stjórnskipan Tyrklands. Þjóðkjörinn forseti gæti frekar freistast til að standa gegn vilja þingsins, þar sem bæði þingið og forsetinn yrðu kosin af þjóðinni. Þetta gæti skapað óstöðugleika auk þess sem grafið væri undan hlutleysi forsetans.

Forseti landsins hefur til þessa verið þingkjörinn. Erdogan brá til þess ráðs að fá þingið til að samþykkja þessa stjórnarskrárbreytingu, þar sem nægilegur meirihluti var ekki á þingi til að kjósa forsetaframbjóðanda hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×