Yrði draumur að spila með Bristol 26. maí 2007 10:00 Hefur auga á draumastaðnum í augnablikinu, næstefstu deild í Englandi. MYND/Stefán
Kjartan Henry Finnbogason vonast til þess að ganga til liðs við nýliða Bristol City í Championship-deildinni í Englandi. „Bristol City er búið að hafa samband og vill sjá meira af mér. Mér líst rosalega vel á það. Championship-deildin heillar auðvitað mjög mikið, 20.000 manns á hverjum leik og það væri draumur að spila þar. Þessi deild, og reyndar deildin fyrir neðan, eru góðir stökkpallar enda er vel fylgst með þeim," sagði Kjartan en samningur hans við Celtic rennur út í næstu viku. Kjartan Henry mætti á sínu fyrstu æfingu með KR í gær en hann fær að æfa með sínu gamla félagi þar til framtíð hans skýrist. Liðið sem hann gengur til liðs við, að því gefnu að hann fari frá Celtic sem allar líkur eru á, þarf að greiða skoska félaginu um 150 þúsund pund í uppeldisbætur, tæpar nítján milljónir íslenskra króna. Kjartan tekur lífinu þó með ró þessa stundina. „Ég er mjög rólegur yfir þessu. Bristol er að fara í frí en fer í æfingaferðalag í byrjun júlí og mér stendur til boða að fara í það með þeim. Það er óþægilegt að þurfa að segja nei við alla aðra þangað til, sérstaklega ef ég myndi síðan enda á því að semja ekki við þá. Ef það gengur ekki upp myndi ég líklega stökkva á eitthvað gott tilboð á Norðurlöndunum," sagði Kjartan en fjöldamörg lið vilja fá hann til sín til reynslu. KR hefur rætt við Kjartan um að hann spili með félaginu í sumar og Kjartan segir að ekki sé útilokað að hann gangi í þeirra raðir. Teitur Þórðarson, þjálfari KR, sagði við Fréttablaðið í gær að ákvörðunin væri alfarið Kjartans en hann kæmi til með að styrkja hóp KR, gengi hann í félagið.
Enski boltinn Mest lesið Blaðamannafundi slitið snemma og Ísraelar brjálaðir Fótbolti Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Enski boltinn „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Íslenski boltinn Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Handbolti Étur hatt sinn vegna ummæla um Gylfa Fótbolti Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorun: Stefnir hátt í síðasta Bakgarðshlaupinu sínu Sport Er katastrófa að vinna ekki í dag? Fótbolti Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn „Mun skilja sál mína eftir í búrinu“ Sport Fleiri fréttir Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Sjá meira