Enski boltinn

Óttast um heilsu Wenger

Arsene Wenger hefur verið undir miklu álagi undanfarið.
Arsene Wenger hefur verið undir miklu álagi undanfarið.

Nánustu samstarfsmenn Arsene Wenger eru farnir að óttast það að hið gríðarlega álag sem þjálfarinn er undir sé farið að taka sinn toll.

Álagið mun hafa aukist mikið eftir að nánasti samstarfsmaður hans hjá Arsenal, David Dein, lét af störfum fyrir skömmu.

Ástandið er orðið það slæmt að Wenger mun hafa látið setja inn sérstakt ákvæði í nýjan samning sinn við Arsenal, sem búist er við að hann undirriti innan tveggja vikna, þess efnis að ef álagið verði honum of mikið geti hann látið af störfum fyrirvaralaust.

Gilles Grimandi, fyrrum leikmaður Arsenal og útsendari Wenger í Frakklandi segir að allir samstarfsmenn Wenger séu að gera sitt til að létta á byrðum Wenger.

"Það er hins vegar mjög erfitt, málið er bara að það kemur enginn í staðinn fyrir David Dein," bætir Grimandi við.

Wenger viðurkennir sjálfur að hann sé vinnusjúklingur. Hann eyðir flestum nóttum í að horfa á fótboltaleiki víðs vegar frá Evrópu á heimili sínu í Hertfordshire.

Í nýlegu viðtali sagði Wenger til að mynda: "Stundum þegar ég horfi á endursýningar af leikjum Arsenal sé ég mann á hliðarlínunni sem ég þekki ekki. Síðan átta ég mig á því að þetta er ég og það getur verið ógnvekjandi.

Innanbúðarmenn hjá Arsenal segja að skarð David Dein verði að fylla sem fyrst til að Wenger keyri sig ekki út. Þeir segja að sá sem líklegastur sé í það starf sé Gilles Grimandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×