Enski boltinn

Terry að verða klár í slaginn

John Terry er mikilvægur hlekkur í Chelsea-liðinu.
John Terry er mikilvægur hlekkur í Chelsea-liðinu. Nordic Photos/Getty

Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er vongóður um að fyrirliði sinn John Terry verði fyrr klár í slaginn en reiknað var með en Terry er að jafna sig eftir að hafa tábrotnað í æfingaferð Chelsea í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Mourinho bindur vonir við að Terry verði klár í stórleikinn gegn Liverpool 19. ágúst næstkomandi.

"Ég held að það sé jafnvel möguleiki að hann nái leiknum gegn Liverpool. Þða er útilokað að hann geti spilað gegn Reading á miðvikudaginn en ef hann spilar ekki gegn Liverpool þá verður hann örugglega klár gegn Portsmouth í vikunni á eftir," segir Mourinho en hann saknaði fyrirliða síns sárlega í sigrinum gegn Birmingham í dag þar sem Chelsea fékk á sig tvö mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×