Erlent

Slepptu ensku stúlkunni

Nígerískir mannræningjar slepptu henni úr haldi á sunnudag vegna þrýstings frá stjórnvöldum í Nígeríu.
Nígerískir mannræningjar slepptu henni úr haldi á sunnudag vegna þrýstings frá stjórnvöldum í Nígeríu. Fréttablaðið/ap

Nígerískir mannræningjar hafa sleppt þriggja ára gamalli enskri stúlku, Margaret Hill, sem þeir rændu á fimmtudag. Mike Hill, faðir stúlkunnar, sagði að dóttur sinni hefði verið sleppt vegna þrýstings frá nígerískum stjórnvöldum.



Mannræningjarnir kröfðu foreldra stúlkunnar um lausnargjald og hótuðu að drepa hana ef þeir fengju það ekki. Að sögn föður hennar greiddu þau ekkert lausnargjald.



Margaret er þriðja barnið sem er rænt í Nígeríu undanfarnar sex vikur; hinum tveimur var sleppt eftir nokkra daga í haldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×