Gagnrýnir bresku lögregluna 10. júlí 2007 01:00 Gagnrýnd fyrir að kanna ekki hvort vegabréf þeirra sem koma til landsins séu stolin eða týnd. fréttablaðið/AP
Ronald Noble, yfirmaður alþjóðalögreglunnar Interpol, gagnrýnir harðlega aðgerðir bresku lögreglunnar gegn hryðjuverkamönnum. Hann segir bresku lögregluna hvorki nýta sér sem skyldi upplýsingar frá Interpol, né heldur hafi breska lögreglan viljað veita Interpol upplýsingar um menn sem hafi verið handteknir í Bretlandi grunaðir um hryðjuverk. Noble segir reyndar að einungis 17 af 186 aðildarríkjum Interpol fylgist reglubundið með því hvort vegabréfanúmer ferðamanna, sem koma til þessara landa, sé að finna á lista Interpol yfir stolin eða týnd ferðaskilríki. Meira en 15 milljón skjöl eru skráð á þennan lista, og þar á meðal eru meira en sjö milljónir vegabréfa. „Á hinn bóginn er í öllum löndum leitað kerfisbundið í töskum okkar til að kanna hvort við erum með flöskur með vatni eða öðrum vökva. Þessi forgangsröðun sýnist vera misráðin.“ Noble segir að í Sviss sé flett upp í þessum gagnagrunni um það bil 300 þúsund sinnum í hverjum mánuði, og venjulega finnist þá um hundrað týnd eða stolin vegabréf. Bretar fletta hins vegar aðeins 30 sinnum í mánuði upp í þessum gagnagrunni, og í Bandaríkjunum sé aðeins 80 sinnum á mánuði flett upp í honum. Noble sér ekki minnstu ástæðu til að tengja hryðjuverkahættu sérstaklega við innflytjendur. Mesta hættan stafi einfaldlega af því að ekki sé kannað hvort vegabréf, sem fólk notar á ferðum sínum milli landa, séu stolin eða týnd.
Mest lesið Vaktin: Átökin breiðast enn út Erlent Formaður Viðreisnar í Reykjavík sakaður um fjárdrátt Innlent Fótbrotinn og févana í Afríku Innlent „Ég hefði stigið inn í á sekúndum hefði ég vitað af þessu“ Innlent Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Erlent „Þá er bara búið að skemma MR“ Innlent „Hversu lágt geta þingmenn lagst í störfum sínum?“ Innlent Íslenskt par flýr Dúbaí á eigin vegum Innlent Dagur segir Þorstein auk Jóns eiga heiðurinn af EES-samningnum Innlent Opinber útför Davíðs Oddssonar en fjölskyldan ræður för Innlent Fleiri fréttir Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Sjá meira