Erlent

Knútur hættir að koma fram

Knútur og þjálfarinn Doerflein sem hefur annast Knút frá því hann fæddist 5. desember síðastliðinn.
Knútur og þjálfarinn Doerflein sem hefur annast Knút frá því hann fæddist 5. desember síðastliðinn. fréttablaðið/AFP

Ástsæli ísbjarnarhúnninn Knútur og þjálfari hans, Thomas Doerflein, munu hætta að koma fram saman tvisvar á dag að því er yfirvöld dýragarðsins í Berlín greindu frá í gær.



Knútur var aðeins níu kíló að þyngd þegar hann birtist almenningi fyrst í mars en er nú að nálgast 50 kíló.



Héðan í frá verður Knútur til sýnis líkt og önnur dýr í dýragarðinum. Talskona dýragarðsins sagði breytinguna tilkomna í fyrsta lagi til að tryggja öryggi Doerfleins en einnig væri verið að undirbúa Knút undir að umgangast aðra birni en ekki bara fólk.-




Fleiri fréttir

Sjá meira


×