Erlent

Dæmdir fyrir að skipuleggja hryðjuverk

Þrír menn voru í gær sakfelldir fyrir að hafa skipulagt hryðjuverk í samgöngukerfi London 21. júlí árið 2005, tveimur vikum eftir að 52 létust í hryðjuverkaárás í borginni. Þrír aðrir bíða dóms.



Sexmenningarnir voru sakaðir um að hafa reynt að sprengja sig í loft upp í þremur lestum og strætisvagni í tilraun til að endurspegla fyrri árásina. Ekki tókst að virkja sprengjurnar.



Sakborningarnir sögðu sprengjurnar hafa verið plat og tilgangurinn hafi verið að mótmæla Íraksstríðinu. Lögregla sagði sprengjurnar hafa verið ekta en ekki ljóst af hverju þær hefðu ekki sprungið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×