Erlent

Herinn ekki kallaður heim

george bush
george bush

George Bush Bandaríkjaforseti ætlar ekki að kalla bandaríska herliðið heim frá Írak. Stuðningur við Íraksstefnu hans hefur minnkað innan Repúblikanaflokksins; þrír öldungadeildarþingmenn flokksins hafa gagnrýnt stefnu hans á síðustu dögum.



Yfirmaður herafla Bandaríkjamanna í Írak, David Petraeus, sagði í samtali við BBC í gær að stríðið gegn uppreisnarmönnum í landinu væri langtímaverkefni sem gæti tekið áratugi að ljúka.



Að minnsta kosti 3.065 bandarískir hermenn hafa fallið í Írak frá því stríðið braust út í mars árið 2003. -




Fleiri fréttir

Sjá meira


×