Æska sem lukkudýr SS 29. ágúst 2007 01:15 Yngsti nasistinn "Lukkudýrið" Alex Kurzem sést hér í SS-búningi í hópi liðsmanna lettnesku SS-sveitarinnar.
Örlög Alex Kurzem kom til Ástralíu árið 1949, þá fimmtán ára gamall, með ekkert nema litla brúna skjalatösku í fórum sínum, en burðaðist með minningar þyngri en tárum tóku. Þeim hélt hann leyndum fyrir ástralskri konu sinni og börnum allt fram til ársins 1997. Í fyrstu trúðu þau ekki sögu hans, en sonur hans einsetti sér að komast að hinu sanna. Fréttavefur BBC greinir frá því að þeir feðgar ferðuðust á æskuslóðir Kurzems í Hvíta-Rússlandi og Lettlandi. Ótrúlega sögu Kurzems sem gyðingadrengs, sem varð lukkudýr nasistahersveitar og lifði þannig af hið grimmilega stríð á austurvígstöðvunum, hefur sonurinn nú fest á bók. Saga Alex Kurzem - sem reyndar fæddist sem Ilja Galperin samkvæmt því sem þeir feðgar komust að - hefst þar sem hann fyrst man eftir sér, þá fimm eða sex ára að aldri, í þorpi nærri Minsk í Hvíta-Rússlandi þann 20. október 1941. Í kjölfar framrásar þýska hersins kom SS-sérsveit í þorpið með það verkefni að drepa alla íbúana, sem voru gyðingar. Að kvöldi dagsins sem allir karlmenn úr röðum þorpsbúa höfðu verið skotnir, sagði móðir Alex að morguninn eftir yrðu þau líka drepin. Um nóttina ákvað Alex litli að flýja, kvaddi móður sína og hljóp út í skóg. Um morguninn varð hann vitni að því ofan úr tré hvernig móðir hans, systir og litli bróðir voru skotin og grafin í fjöldagröf. Hann hafði þá í engin hús að venda og lifði í skóginum mánuðum saman, borðaði ber og sníkti sér brauðbita á bæjum. Eftir níu mánaða vergang var hann fenginn í hendur lögreglunnar, sem var lettnesk. Þessi lettneska lögreglusveit varð síðar að SS-sérsveit sem tók meðal annars þátt í fjöldamorðum á gyðingum. Einn liðsmaður lögreglusveitarinnar komst að því að drengurinn var umskorinn gyðingur en ákvað af einhverjum óræðum ástæðum að halda hlífisskildi yfir honum og sagði félögum sínum að stráksi væri rússneskur munaðarleysingi. Þar hjálpaði honum "arískt" útlit. Svo fór að drengurinn varð lukkudýr hersveitarinnar, fékk sérsniðinn SS-búning með byssu og ökklasíðum frakka. Hann var sýndur í þýskum stríðsfréttamyndum sem "yngsti nasisti Ríkisins". Hann fylgdi hersveitinni hvert sem hún fór og varð vitni að hræðilegum voðaverkum. Árið 1944, þegar stríðslukkan var farin að snúast gegn Þjóðverjum, kom yfirmaður SS-sveitarinnar drengnum fyrir hjá lettneskri fjölskyldu og þannig lifði hann af stríðslokin. Og eins og áður segir flutti hann til Ástralíu árið 1949 og þagði eftir það í hálfa öld um ótrúlega æsku sína.
Mest lesið Sumarstarfsmaður stal sjö milljónum af Happdrætti Háskóla Íslands Innlent Gríðarlegur verðmunur á þyngdarstjórnunarlyfjum Innlent Upptaka náðist af alvarlegu umferðarslysi Innlent „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Erlent Fisk rekur á land á Stokkseyri – Fólk sækir sér í soðið Innlent Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Erlent Þriggja bíla árekstur varð á Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes Innlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Soham-morðinginn látinn Erlent Þrír með gervigreind leysa af tæplega tuttugu manna teymi Innlent Fleiri fréttir „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Leita til Úkraínumanna vegna íranskra sjálfsprengidróna Telja sjávarhæð verulega vanmetna sem gæti ógnað milljónum manna Játar að hafa haldið við aðstoðarkonu sem kveikti í sér Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028 Íhugar að reka Noem eftir deilur við þingmenn Reyna að vernda líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Sjá meira