Erlent

Öllum íþróttaleikjum í Grikklandi frestað vegna óeirða

Öllum íþróttakappleikjum í Grikklandi hefur verið frestað í hálfan mánuð eftir að til óeirða kom á milli stuðningsmanna Panathinaikos og Olympiakos að loknum leik í kvennadeildinni í blaki. Einn lést í átökunum sem blossuðu upp á bílastæði leikvangsins í úthverfi Aþenu. Svo virðist sem um þrjú hundruð bullur hafi gengið berserksgang og ráðist á allt sem fyrir varð með hnífum, kylfum og grjóti. Fjölmargir særðust í ólátunum og urmull bíla var eyðilagður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×